Jæja þá eru allir fjölskyldumeðlimirnir nema mamman búnir að fá hlaupabólu á síðustu vikum. Bjössi tók sem sagt upp á því í vikunni að leggjast í hlaupabólu og Ari fylgdi fast á eftir. Brekinn er hins vegar orðinn alveg frískur, hann er reyndar enn með restar af bólum en þær eru þó óðum að hverfa! [...]
Archive for the ‘Uncategorized’ Category
hlaupabóla #2 og #3…
4. október, 2008
hlaupabóla…
29. september, 2008
Það er svo sem ekki mikið að frétta af okkur nema veikindastand. Arnar Breki er búinn að vera með hlaupabólu núna í rúma viku. Hún fór ótrúlega rólega af stað, við sáum merki um bólur á föstudeginum fyrir viku, kveiktum samt ekki að hlaupabólan væri mætt á svæðið. Það var svo ekki fyrr en á [...]
annar og ani…
18. september, 2008
Ari er sem sagt farinn að myndast við að segja nafnið sitt og bróður síns. Reyndar hafa undanfarna daga bæst við mörg orð á dag. Hann hefur hins vegar fram að þessu ýmist kallað bróður sinn bróa eða mammi nú segir hann Annar eða Addi. Svo segist hann sjálfur heita Ani eða Benni en stundum [...]
stubbarnir í tölvunni…
11. september, 2008
Hér er smá myndbrot með strákunum fyrir framan tölvuna. Þvílík innlifun hjá Ara en AB var eiginlega komin með nóg enda búinn að hlusta á Skítt með kerfið örugglega 10 sinnum í röð…Arinn fékk hins vegar ekki leið – alltaf sama stuðið þegar lagið er sett í gang Endilega skrifið í gestabókina eða í responses [...]
Bubbi bybb bybb…
10. september, 2008
Bubbalagið þróast sífellt, nú er það Bubbi bybb bybb sem er sungið reglulega. Annars hafa þeir bræður frekar fyndinn tónlistarsmekk, hlusta að sjálfsögðu á gömlu góðu barnalögin en biðja samt jafn oft um Green Day, Coldplay eða jafnvel Damien Rice…foreldrunum finnst það afar hentugt þar sem ekki er bara gerð krafa um barnalög í bílnum. [...]
baaa ba bobb bobb…
3. september, 2008
Þetta syngur Ari núna allan daginn og fyrir þá sem ekki skilja þá þýðir þetta Bubbi Byggir eða Bobbi eins og Ari kallar hann Bubbi er bara aðalmálið þessa dagana og hann biður reglulega um að fá að horfa á Bubba og stillir sér upp í sófanum…hann er hins vegar ekki mikið fyrir sjónvarpsgláp þannig [...]
“nýjar” myndir á barnalandi…
2. september, 2008
Ég setti í gær inn á Barnaland heilan helling, 5 mánaða skammt, af leikskólamyndum…geri aðrir betur Myndirnar eru í 2 albúmum: Hólmasól – apríl/maí/júní 2008 og Hólmasól júlí/ágúst 2008. Það á líklega eitthvað eftir að bætast í seinna albúmið. Sömuleiðis er von á fleiri fjölskyldumyndum en ég rakst á helling af myndum frá Tenerife sem [...]
mömmur eru alltaf svo mikið að ganga til…
14. ágúst, 2008
AB tilkynnti mér þetta upp úr þurru í bílnum um daginn. Þetta átti sem sagt að vera mömmur eru alltaf svo mikið að ganga frá eða laga til…hann slær þessu alltaf saman. Það eru nokkrir svona hlutir sem hann segir alltaf vitlaust t.d. segir hann alltaf ég slag í staðinn fyrir ég skal, samt veit [...]
arinn byrjaður á leikskóla…
12. ágúst, 2008
Ég er búin að vera í verkfalli á heimasíðunni og bloggi…og systir mín er eitthvað farin að kvarta Ég hef bara hvorki haft tíma né nennu til að sitja við tölvuna í sumar, það hefur í mesta lagi gefist tími til að tékka á tölvupósti! Annars höfum við haft það voða gott í sumar. Bjössi [...]