gullkorn

10.06.2008

Um síðustu helgi fékk Arnar Breki púkanammi hjá ömmu sinni og pabbi hans spurði hvort að hann mætti smakka – AB leit þá utan á pakkann og sagði nei það stendur hérna: pabbar mega ekki smakka ;)

Svipuð viðbrögð fékk pabbi hans um daginn þegar þeir feðgar voru að laga til í skúrnum og rákust á tjaldið okkar. Þá vildi AB að sjálfsögðu tjalda því – Bjössi sagði að þeir myndu gera það seinna. Þá fann AB einhvern miða á tjaldpokanum og sagði: það stendur hérna börn mega alveg þetta tjald :)

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.