Bubbalagið þróast sífellt, nú er það Bubbi bybb bybb sem er sungið reglulega. Annars hafa þeir bræður frekar fyndinn tónlistarsmekk, hlusta að sjálfsögðu á gömlu góðu barnalögin en biðja samt jafn oft um Green Day, Coldplay eða jafnvel Damien Rice…foreldrunum finnst það afar hentugt þar sem ekki er bara gerð krafa um barnalög í bílnum. Annars eru lögin af gömlu Vísnaplötunni afar vinsæl þessa dagana og sofnar AB með Ég á lítinn skrýtinn skugga á repeat á kvöldin.
Eitt af því skemmtilegasta sem þeir bræður vita þessa dagana er að fá að horfa á myndbönd á YouTube og er þar Bubbi í 1. sæti, síðan kemur I´m a Gummibear (mjög vinsælt), svo Skítt með kerfið og hitt og þetta rokk. Arnar Breki biður líka reglulega um að hlusta á Ship og hoy með Dr. Spock og svo Mercedes Club. Tónlistarmyndbönd eru það eina sem Ari nennir að horfa á í tölvu eða sjónvarpi. Hann endist aldrei út kynninguna þó svo að hann biðji reglulega um að horfa á einhverjar teiknimyndir. Arnar Breki dettur hins vegar INN í sjónvarpið þegar hann horfir á teiknimyndir og þá er ekki hægt að ná sambandi við hann – svolítið líkur pabba sínum
Annars hélt ég að hún systir mín myndi kafna úr hlátri í gær þegar við vorum að tala við hana á Skype. Arnar Breki þarf alltaf að leyfa henni að heyra einhver lög af YouTube og varð Gummibear fyrir valinu. Lagið var sett á, Arnar Breki fór INN í tölvuna hann var svo niðursokkinn og einbeittur og þá byrjaði Ari að sjálfsögðu að dilla sér eins og honum einum er lagið. Helga hélt fyrst þar sem þeir bræður sátu í fanginu á mér að ég væri að rugga honum…en nei hann sér sko alveg um þetta sjálfur
Ég veit ekki hvaðan þessar hreyfingar koma en hann iðar allur, hristir hausinn, trommar og er bara í sínum eigin heimi…barnið gjörsamlega elskar tónlist.
Hann er loksins orðinn frískur greyið, sko Ari. Hann var hitalaus á fimmtudag og föstudag en var svo orðinn eitthvað slappur á föstudagskvöldið. Vaknaði svo með 39 stiga hita og eyrnabólgu á laugardaginn eftir erfiða nótt. Hann er því búinn að vera heima síðan og var orðinn frekar leiður á þessu í gær. Hann fékk því að fara í leikskólann í morgun og var frekar sáttur.
1. lotan í skólanum var um helgina, hún var fín en ég er enn þreytt eftir þessa törn. Nú er allt bara að fara á fullt í lestri en ég hef því miður ekkert getað sinnt því, verð að setja í fluggírinn í kvöld. Bjössi er svo að byrja í skólanum í dag og verða miðvikudagar því ekkert voða skemmtilegir hjá okkur. En þessar vikur verða fljótar að líða. Mér til mikillar ánægju þá verðum við bæði búin í skólanum í lok nóvember…mér finnst æðisleg tilhugsun að vera ekki í verkefnaskilum í desember.
Jæja ég ætla að reyna að henda nokkrum myndum inn á Barnaland áður en ég rölti af stað til að sækja strákana
kyss og knús, hb